Kvennahlaupsbolurinn 2020 var afhjúpaður 22. maí í beinni á Facebook. Bolurinn hefur verið ómissandi hluti af hlaupinu undanfarin ár en nú hefur hugsunin á bak við hann verið endurskoðuð í takt við breytta tíma.
Það er Linda Árnadóttir fatahönnuður og eigandi Scintilla sem hannar bolinn í ár en hann er 100% endurunninn, úr endurunninni lífrænni bómull og endurunnu plasti. Bolurinn hentar bæði sem hlaupa- og æfingaflík en einnig við fleiri tilefni og því hægt að nýta hann enn betur en áður.
Bolurinn er til í takmörkuðu upplagi en kaup á bolnum gefur þátttökurétt í hlaupinu. Í takt við þessa nýju umhverfisstefnu hlaupsins má með einföldum hætti greiða aðeins fyrir þátttöku í hlaupinu á tix.is. Jafnframt hefur verið ákveðið að afnema útdeilingu verðlaunapeninga en hingað til hafa allir þátttakendur farið heim með medalíu.
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið 13. júní á yfir 80 stöðum á landinu og allir geta tekið þátt óháð aldri, þjóðerni eða kyni. Fjölmennustu hlaupin fara fram í Garðabæ og Mosfellsbæ. Í ljósi Covid–19 verða gerðar ráðstafanir um fjölda þar sem það á við og allar reglur virtar skilyrðislaust. Þátttakendur eru hvattir til að gera sínar eigin ráðstafanir og virða þessar aðstæður. Nánari upplýsingar um hlaupastaði og tímasetningar birtast á næstu dögum á www.kvennahlaup.is