Auglýsing

Kvikmyndatónskáldið Hildur Guðnadóttir skrifar undir plötusamning

Kvikmyndatónskáldið og sellóleikarinn Hildur Guðnadóttir hefur nú skrifað undir plötusamning við þýska útgáfurisann Deutsche Grammophon.

Hildur hlaut Emmy-verðlaun fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl og hlýtur nú mikið lof fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker, þar sem leikarinn Joaquin Phoenix fer með aðalhlutverk.

Í tilkynningu frá útgáfufyrirtækinu Deutsche Grammophon segir að mikill fengur sé í Hildi fyrir útgáfuna og að hún sé full af sköpunarkrafti og hugmyndaauðgi. Tónlist hennar sé persónuleg og snerti strengi innra með fólki.

„Allir sem hafa hlýtt á kvikmyndatónlistina við Chernobyl eða fyrri verk hennar heyra hversu byltingarkennd tónlistin er. Við bjóðum hana velkomna.“ segir Clemens Trautman forstjóri útgáfunnar.

Þetta kom fram á vef Rúv.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing