Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað inn minnisblaði til heilbrigðisráðherra, sem mun fara yfir það á fundi ríkisstjórnar í dag.
Þær sóttvarnaraðgerðir sem nú eru í gildi renna út á morgun. Búast má við að ríkisstjórnin muni kynna nýjar aðgerðir að fundi loknum, samkvæmt venju.
Samkvæmt núverandi sóttvarnaraðgerðum er 20 manna almenn samkomutakmörkun, með undanþágu á 50 manna sitjandi samkomum. Þá er heimilt að 200 manns komi saman, gegn framvísun neikvæðs hraðprófs.