Hörður Alexander tónmenntakennari í Lækjarskóla skipulagði samsöng nemenda sinna að heiman, þar sem hver og einn söng í sínu húsi.
Krakkarnir, ásamt nokkrum kennurum, sungu lagið Gagnamagnið eftir Daða Frey. Hörður klippti svo allar upptökurnar saman og úr varð þetta frábæra myndband hér fyrir neðan.