Leikarinn Jeff Bridges, 70 ára, greinir frá því á Twitter að hann hafi nýlega greinst með eitlafrumukrabbamein.
„Ég hef verið greindur með eitlafrumukrabbamein. Þrátt fyrir að þetta sé alvarlegur sjúkdómur, þá er ég það lánsamur að vera með gott læknateymi og batahorfurnar eru góðar. Ég hef nú þegar hafið meðferð og mun leyfa ykkur að fylgjast með gangi mála,“ skrifar hann.
As the Dude would say.. New S**T has come to light.
I have been diagnosed with Lymphoma. Although it is a serious disease, I feel fortunate that I have a great team of doctors and the prognosis is good.
I’m starting treatment and will keep you posted on my recovery.
— Jeff Bridges (@TheJeffBridges) October 20, 2020