John Snorri Sigurjónsson, sem ætlaði að ganga fjórtán ferðir upp Esjuna á 28 klukkutímum, ákvað í dag að láta átta ferðir duga. Hann hóf gönguna kl 18 í gærkvöldi og lét staðar numið eftir hádegi í dag.
„Ég fann orðið til í hægra hné þegar ég var á áttundu ferðinni upp Esjuna og verkirnir jukust jafnt og þétt. Það væri í sjálfu sér ekkert tiltökumál en þar sem það eru bara tvær vikur í brottför til Pakistan þá fannst mér ekki skynsamlegt að leggja í neina óþarfa áhættu. Þessir sprettir upp Esjuna í gær og í dag voru fyrst og fremst hugsaðir sem æfing og fjáröflun til að vekja athygli á verkefninu en ekki til að stefna því í hættu,“ segir John Snorri í tilkynningu til fjölmiðla.
„Ég fékk fullt út úr þessu æfingalega séð. Ég er búinn að vera í fjallinu í roki og kulda í rúmlega 18 tíma sem er góður tími til að undirbúa andlegu hliðina. En auðvitað er einn þáttur í svona þjálfun að taka réttar ákvarðanir og láta kappið ekki koma sér í vandræði,“ segir hann. En John, sem árið 2017 varð fyrsti Íslendingurinn til þess að komast á topp fjallsins K2, mun í næsta mánuði reyna aftur að vetri til. Takist honum ætlunarverkið verður hann fyrsti maður heims til að ná á topp fjallsins að vetri til.
Fjallið, sem er 8.611 metra hátt, er talið vera eitt hættulegasta og mannskæðasta í heimi en um fjórðungur þeirra sem hafa reynt að klífa fjallið hefur farist í þeirri ferð.
Þetta kom fram á vef Fréttablaðsins.