Opnað hefur verið fyrir umsóknir í verkefnið Ræsing Norðurlands vestra, en Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, leitar að góðum viðskiptahugmyndum sem auka flóru atvinnulífs í sveitarfélögunum. Þátttakendur fá leiðsögn og fræðslu um hugmyndavinnu, vöru- og þjónustuþróun, fjármögnun og áætlanagerð.
Verkefnið verður unnið í júní og verða áætlanir rýndar í ágúst.
Besta viðskiptahugmyndin fær allt að kr. 1.000.000 í verðlaun.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí.
Umsóknarform og frekari upplýsingar eru á www.nmi.is/raesing eða hjá Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, annagudny@nmi.is, og Sigurði Steingrímssyni, sigurdurs@nmi.is.
Þetta kemur fram á vefnum Trolli.is