Lögreglan á Suðurnesjum hvetur íbúa í Reykjanesbæ til þess að læsa hurðum og að tilkynna til Neyðarlínunnar verði þeir varir við grunsamlegar mannaferðir að næturlagi.
Þá birtir lögreglan mynd af manni sem hefur verið að fara inn í hús og bílskúra.