Lokaþáttur af „Það er komin Helgi“ verður sýndur í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans og í streymi á mbl.is á laugardagskvöldið. Sérstök söfnun fyrir Mæðrastyrksnefnd fer fram meðfram útsendingunni.
Til þess að taka þátt í símasöfnun fyrir Mæðrastyrksnefnd þarf einungis að senda sms-ið „Helgi“ í númerið 1900 en þá fara sjálfkrafa 1.000,- krónur af næsta símreikningi til Mæðrastyrksnefndar.