Auglýsing

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti gærkvöldsins. Tveir skipta með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra rúmlega 317 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn var keyptur í Olís, Langatanga 1 í Mosfellsbæ og hinn miðinn var í áskrift.

Átta miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Jolla, Helluhrauni 1 í Hafnarfirði, N1, Þjóðbraut 9 á Akranesi, Þrastarlundi í Grímsnesi, á heimasíðu Lotto.is, tveir í Lottó appinu og tveir miðar voru í áskrift.

Heildarfjöldi vinningshafa var 8.973.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing