Tónlistarkonan Madonna birti á dögunum mynd af sér á Instagram þar sem hún er berbrjósta á nærbuxunum og stendur við hækju.
Við myndina skrifar hún: ,,Allir eiga hækju”
Hún hefur átt við heilsufarsvandamál að stríða undanfarið og þurfti að aflýsa nokkrum tónleikum á tónleikaferðalagi sínu, Madame X, vegna veikinda. Eftir að kórónuveiru-faraldurinn skall á var hætt við þá tónleika sem eftir voru af ferðalaginu.