Alvarlegt bifhjólaslys varð á Útnesvegi á vestanverðu Snæfellsnesi við Saxhóla, seinnipartinn í gær. Maður á þrítugsaldri liggur alvarlega slasaður á Landspítalanum eftir slysið. Þetta kemur fram á vef mbl
Talið er að hjólið hafi skrikað til í möl sem varð til þess að maðurinn féll af hjólinu, segir Helgi Pétur Ottesen, rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á Vesturlandi.
Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út og flutti hún manninn á Landspítalann í Fossvogi þar sem hann liggur nú. Ekki fást frekari upplýsingar um líðan mannsins að svo stöddu.