RÚV og Rás 2 ferðast um landið og halda tónleika á föstudagskvöldum í júlí, undir nafninu Tónaflóð um landið.
Tónleikarnir eru síðan sýndir í beinni útsendingu á rúv og á Rás 2. Tónaflóð um landið heldur áfram næsta föstudagskvöld og verður í beinni frá Höfn í Hornafirði.
Hér fyrir neðan má sjá þau Magna, Ágústu Evu, Aron Can, Sverri Bergmann og Guðrúnu Árnýju flytja saman lagið „Leiðin okkar allra“, síðastliðið föstudagskvöld á Akureyri.