Fjárfestingar Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækja munu nema liðlega 106 milljörðum króna á næstu sex árum samkvæmt fjárhagsspá samstæðunnar, sem samþykkt var af stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í dag. Fjárhagsspáin, sem er fyrir árabilið 2022 til og með 2027, er samandregin fyrir öll fyrirtækin í samstæðunni. Auk móðurfélagsins eru innan hennar Veitur, Orka náttúrunnar, Gagnaveita Reykjavíkur og Carbfix. Á árabilinu er gert ráð fyrir að vaxtaberandi skuldir lækki um 36 milljarða króna.
Loftslagsmálin fléttast inn í flestar fjárfestingar
Bjarni Bjarnason forstjóri segir fjárhag fyrirtækjanna í samstæðu OR traustan og engar verulegar sveiflur fyrirséðar í tekjum eða gjöldum á næstu árum. „Eins og jafnan áður fer verulegur hluti teknanna í að viðhalda þeim miklu eignum sem fyrirtækjunum er trúað fyrir og sjá okkur fyrir grænni orku, fersku vatni og heilnæmara umhverfi,“ segir Bjarni.
Hann bætir við að talsverðar fjárfestingar í nýsköpun séu fram undan sem snerti flestar loftslagsvána með einhverjum hætti. „Carbfix er þar sér á báti með sína mikilvægu aðferð til varanlegrar kolefnisbindingar en líka má nefna uppfærslu allra orkumæla Veitna, sem gefa viðskiptavinum tækifæri til að fylgjast betur með sinni notkun og spara. Orka náttúrunnar verður áfram leiðandi í hleðslulausnum fyrir rafbíla, Veitur munu með einhverjum hætti koma að þeirri byltingu sem er fram undan í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og Ljósleiðarinn sannaði heldur betur gildi sitt í faraldrinum þegar mikill fjöldi fólks hreinlega gat ekki ferðast til vinnu og vann heima hjá sér,“ segir Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Punktar úr fjárhagsspá samstæðu OR 2022-2027
- Fjárfestingar samstæðunnar nema samtals 106 milljörðum króna 2022-2027, eða um 17,7 milljörðum króna á ári.
- Nettó vaxtaberandi skuldir OR lækka um 36 milljarða króna frá árslokum 2021 til ársloka 2027 samkvæmt spánni.
- Tekjuskattur OR til ríkissjóðs verður 18 milljarðar króna á tímabilinu.
- Arðgreiðslur OR til eigenda – Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar – munu nema 33 milljörðum kr. á árunum 2022-2026.
- Allsherjaruppfærsla á orkumælum hjá viðskiptavinum Veitna er hafin. Nýir snjallmælar skapa tækifæri til fjölbreyttari og betri þjónustu við viðskiptavini.
- Verulegur hluti fjárfestinga Veitna er til viðhalds umfangsmiklum veitukerfum fyrirtækisins sem eru samanlagt hátt í 10.000 kílómetrar að lengd.
- Fjárfestingar Orku náttúrunnar miða að því að tryggja áfram góða nýtingu virkjana með traustri gufuöflun og að uppfylla metnað ON í umhverfis- og loftslagsmálum. Jarðhitagarður ON við Hellisheiðarvirkjun í Ölfusi verður þróaður frekar.
- Lagningu Ljósleiðarans til heimila í þéttbýli Reykjanesbæjar, Árborgar og Voga á Vatnsleysuströnd verður lokið á spátímabilinu og grunnkerfi Ljósleiðarans verður eflt vegna uppbyggingar 5G farsímakerfa fjarskiptafélaga.
- Sprotafyrirtækið Carbfix mun halda áfram að byggja upp kolefnishreinsun og -förgun við virkjanir ON og víðar.
- Móðurfélagið mun halda áfram uppbyggingu Elliðaárstöðvar, sögu- og tæknisýningar í Elliðaárdal, ásamt endurheimt náttúrugæða í dalnum að raforkuvinnslu þar lokinni.
Fjárhagsspá Orkuveitu Reykjavíkur 2022 og fimm ára spá 2023–2027 fer til umfjöllunar hjá Reykjavíkurborg, sem hluti af fjárhagsáætlun samstæðu Reykjavíkurborgar.