Netflix mun framleiða vísindaskáldsöguþættina Katla úr smiðju íslenska leikstjórans Baltasars Kormáks. Í fréttatilkynningu frá Netflix segir að fallegt landslag Íslands muni verða fyrirferðarmikið í þáttunum. Framleiðsla á þáttunum hefst árið 2020 en frumsýningardagur verður kynntur síðar.
„Einu ári eftir gos í Kötlu hefur líf bæjarbúa í friðsæla smábænum Vík breyst mikið og þeir neyðast til að yfirgefa bæinn því jökullinn nálægt eldfjallinu byrjar að bráðna. Þeir örfáu íbúar sem eftir eru ná að halda samfélaginu gangandi og þrátt fyrir frábæra staðsetninguna er bærinn nánast orðinn að draugabæ. Dularfullir hlutir sem frusu djúpt inn í jökulinn fyrir löngu koma nú í ljós og hafa ófyrirséðar afleiðingar,“ segir í tilkynningu.
„Það er spennandi verkefni að fá að takast á við Kötlu með Netflix og mikill heiður að vera fyrsta íslenska framleiðsluteymið sem vinnur heila þáttaseríu með risanum. Katla verða metnaðarfullir og óvenjulegir vísindaskáldsöguþættir og eru búnir að vera lengi í þróun hjá RVK Studios. Við erum í skýjunum yfir því að Netflix taki þá til sýninga,“ segir, Baltasar Kormákur í fréttatilkynningu.
„Ísland hefur verið sögusvið svo margra þáttaraða og kvikmynda í gegnum tíðina. Við erum spennt að fá að sýna stórbrotið landslagið í sögu sem er svo íslensk. Að fá líka tækifæri til að vinna með þeim mikla listamanni sem Baltasar er gerir þetta verkefni fullkomið fyrir okkur. Við bíðum spennt eftir því að sjá og heyra söguna á skjánum og geta svo sýnt áskrifendum okkar um allan heim,“ segir Tesha Crawford, framkvæmdastjóri þáttagerðar hjá Netflix í Norður-Evrópu í fréttatilkynningunni.
Katla er samstarfsverkefni Baltasars Kormáks og handritshöfundarins Sigurjóns Kjartanssonar. Þáttaröðin er skrifuð af Sigurjóni, Lilju Sigurðardóttur og Davíð Má Stefánssyni og verður framleidd af RVK Studios.