Matsölustaðurinn Nonnabiti hefur skellt í lás á stað sínum við Hafnarstræti 9 í miðbæ Reykjavíkur. En Kjarninn greindi frá þessu nú í morgun.
Staðurinn hefur verið starfræktur þar síðastliðin 27 ár og hefur verið vinsæll, sérstaklega hjá þeim sem stunda næturlífið. Enda var hann iðulega opinn langt fram eftir nóttu. Á facebook síðu sinni tilkynna þeir að staðnum hafi nú þegar verið lokað en minna um leið á að staður þeirra í Bæjarlindinni í Kópavogi verði áfram opinn.
„Af því tilefni viljum við þakka ykkur viðskiptin og komurnar síðastliðin 27 ár.“