Hljómsveitin Sycamore Tree samanstendur af þeim Ágústu Evu og Gunna Hilmarssyni.
Í dag kom út splunkunýtt lag frá þeim sem ber heitið Beast in My Bones.
„Við höfum sjaldan verið jafnspennt fyrir útgáfu lags eins og Beast In My Bones og nú sleppum við þessu dýri lausu,“ segir Ágústa Eva Erlendsdóttir í samtali við Mbl.is
Lagið er útsett af Arnari Guðjónssyni og hann spilar einnig á gítar, bassa, trommur og hljómborð. Þorleifur Gaukur spilar á gítar, pedal steel-gítar og munnhörpu.
Hér fyrir neðan má hlusta á lagið Beast in My Bones.