Ný tíu þátta sjónvarpssería úr söguheimi Game of Thrones er væntanleg en forsvarsmenn HBO greindu frá þessu í gær. Þættirnir munu fjalla um Targaryen ættina úr Game of Thrones og munu gerast fyrir atburðarrás upprunalegu þáttanna sem luku göngu sinni fyrr á árinu.
Þættirnir heita House of The Dragon og byggja á nýjustu bók George RR Martin, Fire and Blood. Sú bók fjallar um sögu Targaryen ættarinnar í Westeros.
#HouseOfTheDragon, a #GameofThrones prequel is coming to @HBO.
The series is co-created by @GRRMSpeaking and Ryan Condal. Miguel Sapochnik will partner with Condal as showrunner and will direct the pilot and additional episodes. Condal will be writing the series. pic.twitter.com/9ttMzElgXm
— Game of Thrones (@GameOfThrones) October 29, 2019