Flugfélagið sem gengið hefur undir vinnuheitinu WAB mun fá nafnið Play. Einkennislitur nýja flugfélagsins er rauður. „Ástæðan fyrir því að við völdum þennan rauða lit er einfaldlega ástríðan sem fylgir þessum nýja lit,“ sagði Arnar Már Magnússon, forstjóri.
En áætlanir nýja flugfélagsins eru nú kynntar á fjölmennum blaðamannafundi í Perlunni, sjá hér: https://www.nutiminn.is/wab-air-bodar-til-bladamannafundar-i-perlunni/.
Komið hefur nú fram á fundinum að Play er þegar farið að leita að starfsfólki. Um ógrynni af störfum verður að ræða að sögn Arnars og
hann tekur að sama skapi fram að laun verði greidd samkvæmt íslenskum samningum.
Vefsíða félagsins verður flyplay.com og stefnt er að því að sala miða muni hefjast strax í þessum mánuði. Munu áfangastaðir PLAY verða tilkynntir innan skamms. Stefna þeir á að byrja á að fljúga innan Evrópu en gera ráð fyrir að bæta við áfangastöðum í Bandaríkjunum á vormánuðum 2020.