Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens var að gefa út lagið Ennþá er tími og er lagið af væntanlegri plötu hans.
Platan, sem ber heitið Sjálfsmynd, kemur út 16. júní. Meða honum á plötunni eru þeir Guðmundur Óskar Guðmundsson bassaleikari, Hjörtur Ingvi Jóhannsson hljómborðsleikari, Örn Eldjárn gítarleikari, Aron Steinn Ásbjarnarson saxófónleikari og Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommari.