Söngkonan Adele lítur gríðarlega vel út þessa dagana og hefur hugsað vel um heilsuna síðan hún skildi við eiginmann sinn Simon Konecki í vor.
„Eftir að Adele byrjaði að æfa, hefur hún ekki litið til baka. Hún breyttist strax strax og hugarfar hennar breyttist mikið,“ er haft eftir heimildarmanni People.
Að hennar sögn snerist það ekki um útlitið eða kílóafjölda heldur vill hún vera heilbrigð fyrir 7 ára gamlan son sinn. Hún hefur nú misst 19 kíló, hefur aldrei litið betur út.
Hún geislaði í afmæli hjá vini sínum, söngvaranum Drake, nú á dögunum og setti inn mynd af sér á Instagram þar sem hún skrifaði:
„Áðurfyrr grét ég, núna svitna ég“