Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var tilkynnt um úrslit kosninga til stjórnar. Alls gáfu sjö kost á sér til almennrar stjórnarsetu og var kosið um fjögur sæti. Þeir sem sátu fyrir í stjórninni og buðu sig fram hlutu allir kosningu. Þeir sem setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára eru:
Ágúst Þór Pétursson, Mannvit
Guðrún Halla Finnsdóttir, Norðurál
Magnús Hilmar Helgason, Launafl
Sigurður R. Ragnarsson, ÍAV
Fyrir í stjórn Samtaka iðnaðarins eru:
Árni Sigurjónsson, formaður
Arna Arnardóttir, gullsmiður
Egill Jónsson, Össur
Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, CRI
Valgerður Hrund Skúladóttir, Sensa
Vignir Steinþór Halldórsson, Mótx