Guðmundur Ragnar Guðmundsson hefur þónokkra reynslu af notkun Suður Ameríska ofskynjunarlyfsins ayahuasca en notkun þess hefur færst í aukarnar hér á landi og er nokkuð vinsæl á meðal til dæmis jóga iðkenda og annars áhugafólks um andleg málefni.
Ayahuasca er náttúrseyði sem á uppruna sinn í perúska hluta Amazon-frumskógarins þar sem frumbyggjar hafa í margar aldir bruggað það til náttúrulækninga. Neysla þess kallar fram kröftug ofskynjunaráhrif en það inniheldur svokallað DMT efni sem er á bannlista á Íslandi og víðar. Ísland í dag hitti Guðmund og fékk að heyra af persónulegri reynslu Guðmundar af þessu dularfulla efni.