Síðdegis í gær var ekið á gangandi pilt á mótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar. Ökumaðurinn stakk af eftir atvikið. Greint er frá þessu á mbl.is
Faðir piltsins, sem er sextán ára gamall, fór með hann til skoðunar á bráðamóttöku en lögreglan veit ekki hversu alvarleg meiðsl hans eru. Um miðnætti fannst umrædd bifreið og er málið í rannsókn lögreglu.