Lögregla veitti ökumanni á stolinni bifreið eftirför í miðbæ Reykjavíkur í dag. Ökumaður bifreiðarinnar hafði ekki virt stöðvunarbeiðni lögreglu og reynt að komast undan.
Ökumaðurinn, sem var í annarlegu ástandi sökum fíkniefnaneyslu, ók bifreiðinni niður göngugötu á Laugavegi og litlu munaði að hann keyrði niður gangandi vegfarendur, að sögn lögreglu.
Skýrsla verður tekin af ökumanninum, sem er kvenmaður, þegar ástand hennar lagast en hún er nú vistuð í fangaklefa.