Tilkynning barst til lögreglu um klukkan tíu í gærkvöldi þess efnis að ráðist hafi verið á ungmenni í Hafnarfirði og þeim veittir áverkar.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Málið er í rannsókn og er það unnið með aðkomu forráðamanna þeirra sem urðu fyrir árásinni.