Karlmaður leitaði sér aðstoðar á bráðamóttöku Landsspítalans í gærkvöldi eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás.
Hann segist hafa verið að aka manni, sem hann þekkir ekki mikið. Ökuferðin hafi endað þannig að farþeginn kýldi hann í andlitið, hótaði honum lífláti og krafði hann um peninga. Maðurinn stal síðan rafmagnshlaupahjóli úr aftursæti bifreiðarinnar.