RÚV og Rás 2 ferðast um landið og halda tónleika á föstudagskvöldum í júlí, undir nafninu Tónaflóð um landið. Tónleikarnir eru síðan sýndir í beinni útsendingu á rúv og á Rás 2.
Um helgina voru það Laddi, GDRN, Sverrir Bergmann, Emmsjé Gauti og Ragga Gísla sem tróðu upp í Bíldudal og ætlaði allt um koll að keyra.
Hér má sjá frábæra útgáfu af lagi Emmsjé Gauta, Malbik, og er það Ragga Gísla sem tekur viðlagið með honum.