Starfsmaður í verslun Nettó í Lágmúla í Reykjavík varð fyrir árás karlmanns í annarlegu ástandi í versluninni á sunnudagskvöldið. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins
Maðurinn gekk á eftir starfsmanninum í versluninni, sagðist vera með COVID-19 og hóstaði ítrekað nálægt starfsmanninum. Þá hrækti hann einnig í áttina til hans og elti viðkomandi starfsmann inn á baksvæði verslunarinnar og ógnaði honum þar.
Lögreglan var kölluð á vettvang í kjölfarið og fjarlægði hún manninn.