Leynilöggan verður frumsýnd næsta miðvikudag hér á landi en er nú þegar farin að vekja gríðarlega mikla athygli erlendis eins og dómarnir og tilvitnanirnar í þessu geggjaða nýja sýnishorni sýna, sem Hannes Þór Halldórsson leikstjóri myndarinnar, var að ljúka við að klippa saman.
„Makes Reykjavik look like a place for Vin Diesel“
Íslenskir kvikmyndahúsagestir eiga svo sannarlega von á góðu.