Auglýsing

Rihanna biður aðdáendur sína afsökunar

Söngkonan Rihanna biður aðdáendur sína afsökunar á því að hún muni ekki gefa út tónlist á næstunni.

Rihanna ætlar eingöngu að einbeita sér að tísku og snyrtivöruveldi sínu sem nú er metið á um 75 milljarða í íslenskum krónum talið. Hún hefur ekki gefið út plötu síðan árið 2016 en hefur þess í stað einbeitt sér algjörlega að hinu sístækkandi tískuveldi.

Nýjasta viðbótin er undirfatalínan Savage x Fenty. Sú lína var frumsýnd á tískuvikunni í New York þar sem Rihanna sjálf dansaði á sviðinu ásamt módelunum.

„Það eru í raun engar reglur þegar kemur að undirfatnaði. Sætt og ögrandi getur verið í sömu línunni. Línan manar þig í að gera eitthvað ögrandi en halda samt í það að vera trú sjálfri þér“. segir Rihanna aðspurð um nýju línuna.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing