Rúrik Gíslason, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, keppir í þýsku útgáfunni af Let´s Dance. Þættirnir eru sýndir á RTL-sjónvarpsstöðinni og hófst þáttaröðin 26. febrúar.
Dansfélagi Rúriks er atvinnudansarinn Renata Lusin og eru þau að slá í gegn í þáttunum. Núna um helgina fengu þau fullt hús stiga og mikið lof frá dómurunum, þegar þau dönsuðu cha-cha-cha.