Sara Sigmundsdóttir hrósaði sigri á Dubai CrossFit Championship en mótinu lauk í dag.
Hún fékk 967 stig, 26 stigum meira en Karin Frey frá Slóvakíu sem varð önnur. Sara var með góða forystu fyrir síðasta keppnisdaginn og engu breytti þótt hún endaði í 5. sæti í síðustu greininni.
Björgvin Karl Guðmundsson endaði í 4. sæti í karlaflokki. Hann varð í 3. sæti í síðustu greininni og fékk alls 818 stig.
Hér fyrir neðan má sjá útsendingu frá lokadegi mótsins.
Þetta kom fram á vef Vísis.