Auglýsing

Sérsveitin kölluð út að Norðurbakka í Hafnarfirði

Fjölmennt lið lögreglu var kallað út að Norðurbakka í Hafnarfirði í dag. Mikill viðbúnaður var á svæðinu en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var verið að reyna að aðstoða einstakling sem glímir við veikindi.

Sérsveitarmenn voru á meðal þeirra sem voru mættir á Norðurbakkann en nágrannar höfðu deilt áhyggjum sínum af manninum.

Aðgerðum lögreglu lauk um sexleytið og eftirfarandi tilkynning barst frá lögreglu um málið um klukkan hálf sjö:

Á fjórða tímanum í dag barst Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann í ójafnvægi í íbúð fjölbýlishúss í Hafnarfirði, en óttast var að maðurinn kynni að fara sér að voða. Viðkomandi var ósamvinnufús á vettvangi og nokkurn tíma tók að miðla málum áður en öryggi hans var tryggt. Maðurinn var síðan færður á sjúkrastofnun til frekari aðhlynningar. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið.

Þetta kom fram á vef Vísis.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing