Á föstudagskvöldið var sýndur þáttur númer sex af þættinum Í kvöld er gigg. Um er að ræða frábæran tónlistarþátt, með Ingó ,,Veðurguði” í fararbroddi, sem sýndur er á Stöð2
Í hverjum þætti syngur Ingó sig í gegnum tónlistarsögu landsins ásamt gestum þáttarins.
Gestir þáttarins á föstudaginn voru þau Hreimur úr Landi og sonum, Birgitta Haukdal úr Írafári og Gunni Óla úr Skítamóral.