Í gær var frumsýnd ný stikla úr kvikmyndinni Top Gun: Maverick. Myndin er framhaldsmynd hinnar sígildu kvikmyndar Top Gun sem kom út árið 1986.
Stiklan hefur vakið athygli en þegar þetta er skrifað, tæpum tveim sólarhringum eftir að hún var sett á YouTube, hafa um 7,6 milljónir horft. Myndin verður frumsýnd þann 26. júní á næsta ári en hér að neðan má sjá stikluna í heild sinni.