Dúettinn Vandræðaskáld birtu á dögunum nýtt lag á facebook síðu sinni.
Þau segja lagið vera svar þeirra við laginu “Ég er kominn heim” sem hefur undanfarin ár verið hálfgerður þjóðsöngur Íslendinga. Villi syngur lagið einn í þetta skiptið en lagið er einskonar samsuða af nokkrum helstu partýslögurum landsins.