Sjáland er nýr veitingastaður sem staðsettur er við Ránargrund 4 við Arnarnesvoginn í Garðabæ.
Um er að ræða glæsilegan veitingastað sem býður upp á fjölbreytta möguleika, veislusal, veitingastað, kaffihús og fleira. Yfirmatreiðslumenn Sjálands eru þeir Ólafur Ágústsson, Rúnar Pierre Heriveaux og Víðir Erlingsson.
Stórt og mikið útisvæði er við Sjáland sem er á tveimur hæðum með stórbrotið útsýni. Boðið er upp á spennandi matseðil sem sameinar nútíma norræna matargerð og ítalska flatbökuhefð.
Skoða má heimasíðu staðarins hér
Þetta kemur fram á vef Veitingageirans