Íslenska þungarokksveitin Skálmöld mun taka sér langa pásu frá tónlist frá næstu áramótum. Þetta kemur fram á Facebook síðu sveitarinnar í dag.
Þar kemur fram að ákvörðunin hafi verið tekin í fullri sátt allra meðlima. Hljómsveitin mun halda kveðjutónleika í Reykjavík 21. desember næstkomandi.