Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í gærkvöldi tilkynningu um þjófnað í verslun í miðbænum.
Starfsmenn verslunarinnar fóru á eftir þjófnum í tilraun til þess að endurheimta þýfið en sló þá þjófurinn annan starfsmanninn í andlitið.
Starfsmenn verslunarinnar náðu þýfinu en þjófurinn komst undan. Málið er í rannsókn.