Auglýsing

Snoop Dogg boðnir 13.7 milljarðar frá OnlyFans

Rapparanum knáa Snopp Dogg voru boðnar 13.7 milljarðar íslenskra króna eða hundrað milljónir dollara af fullorðins-streymisveitunni OnlyFans en til að gera langa sögu stutta þá afþakkaði hann tilboðið. Þetta kemur fram í viðtali við Snoop í Instagram Live-seríunni Wake & Bake with Double S Express.

Ástæðan segir Snoop vera fjölskylda sín og eiginkona Shante Broadus. Snoop, sem er 52 ára gamall, sagði í þættinum frá því þegar hann heyrði af því fyrst að fjölmargir einstaklingar hefðu grætt milljónir dollara á OnlyFans með því að birta klámfengin myndskeið á streymisveitunni. Þá segir hann frá skilaboðum eigenda síðunnar sem sendu á Snoop: „Þú gætir hæglega fengið 100 milljónir. Eina sem þú þarft að gera er að draga hann út.“ En hvað var verið að meina með því „að draga hann út“ ? Jú. Draga út lim sinn.

„Ég á svarta konu,“ sagði Snoop um Broadus sem er einnig 52 ára gömul og starfar sem umboðsmaður rapparans í dag. „Það er ekki sjéns í heiminum að hún myndi leyfa mér að ganga til liðs við OnlyFans og draga hann út – upphæðin myndi engu skipta þar um.“

Á eiginkonu allt að þakka

Parið hittist fyrst þegar þau voru unglingar og stunduðu nám við Long Beach Polytechnic grunnskólann í Kaliforníu. Þau byrjuðu saman á þessu tímabili, fóru saman á þessi klassísku amerísku skólaböll saman og útskrifuðust árið 1989. Þau giftu sig í júní 1997 og endurnýjuðu heit sín árið 2008.

Eitt farsælasta hjónaband rappsögunnar. Shante og Snoop.

Snoop og Broadus eiga saman fjögur börn: synina Corde, 29 ára, og Cordell, 26 ára, sem og dótturina Cori, 24 ára. Snoop á einnig soninn Julian, 25 ára.

Broadus varð umboðsmaður Snoop í júní 2021. „Shante hefur verið að leiðbeina með feril minn á bakvið tjöldin degi eitt,“ sagði hann í fréttatilkynningu á þeim tíma. „Hún hefur alltaf verið mín endanlega innsýn við allar ákvarðanatökur mínar, og ég væri ekki þar sem ég er í dag án hennar. Ég er þakklátur fyrir að hafa hana sem umboðsmann, að byggja upp Snoop Dogg-veldið saman.“

Hjónabandið staðist tímans tönn

Í viðtali við Today árið 2023 opnaði Snoop sig um af hverju hjónaband hans við Broadus hefur staðist tímans tönn.

„Ég held að það sé vegna þess að við vorum bæði ung og við vorum bæði tilbúin að fórna fyrir hvort annað,“ sagði hann við Today á þeim tíma. „Hún vissi hver draumar mínir og markmið voru, og á sama tíma vissi ég hver hennar voru.“

Snoop hélt áfram: „Að eiga fjölskyldu og vera það sem við erum … við bæði vildum ná því markmiði, og þegar við náðum því, var það erfitt, vissulega, því þú ert með svo margt sem dregur þig frá hjónabandi, og fólk skilur næstum hvern einasta dag.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing