Söngkonan Bríet var gestur í spjallþætti Gumma Ben á föstudagskvöldið. Bríet tók eitt af sínum vinsælustu lögum í þættinum, lagið Feimin(n). Vanalega flytur rapparinn Aron Can lagið ásamt henni en hann var ekki á svæðinu og því kom það í hlut Sóla Hólm að fylla spor hans.
Flutningur Bríetar og Sóla var frábær en hann má sjá hér að neðan.