Söngkonan GDRN kemur fram í beinni útsendingu í gegnum streymi á Facebook-síðu Hljómahallar og á vef ruv.is og á Rás 2 í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.
Hljómahöll og Rokksafn Íslands bjóða landsmönnum upp á ýmsa tónlistartengda viðburði um þessar mundir í gegnum streymi á netinu á þessum óvissutímum. Þar sem að gestir komast ekki á tónleika í Hljómahöll og loka þarf Rokksafni Íslands þá geta gestir kíkt í rafræna heimsókn á tónlistartengda viðburði á næstu vikum. Þar á meðal má nefna beinar útsendingar frá tónleikum í Hljómahöll þar sem fram koma nokkrir þekktir tónlistarmenn og hljómsveitir.
Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta