Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal, eða Auddi Blö, og sambýliskona hans Rakel Þormarsdóttir létu skíra son sinn í gær. Þessu greinir Auddi frá á samfélagsmiðlum í morgun.
„Þessi var skírður Matteó Orri Blöndal í dag,“ skrifar hann. „Við reyndum að draga Rakel og Tedda með okkur á myndina án árangurs.“
Matteó Orri er annað barn þeirra hjúa en fyrir áttu þau soninn Theódór Sverri.
View this post on Instagram