Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri Wow air, og Gríma Björg Thorarensen innanhússhönnuður eignuðust lítinn dreng í gær. Þessu greinir Skúli frá á Facebook síðu sinni.
„Litli prinsinn mætti með látum í gær kl 10.54, heilbrigður, stæltur og glæsilegur eins og móðir sín! 53 cm og 4.160 kg. Allt gekk eins og í sögu og pabbi að springa úr stolti!,“ skrifar Skúli.
Þetta er fyrsta barn Grímu en fyrir á Skúli þrjú börn með fyrrverandi eiginkonu sinni.