Eitt vinsælasta myndbandið á TikTok um þessar mundir er bráðfyndið og hefur verið að slá í gegn bæði á TikTok og á Twitter. Þegar þetta er skrifað hefur verið horft á það 16,4 milljón sinnum síðan í gær.
Á myndbandinu sést maður hlaupa undan risaeðlu og viðbrögð fólks eru kostuleg. Einnig er myndbandið mjög vel klippt saman sem gerir það enn betra.
Færslan á Twitter er nú með 1,4 milljónir læka og 520 þúsund manns hafa endurtíst því.
Hér að neðan má sjá myndbandið vinsæla.
I’ve been laughing for 10 mins straight pic.twitter.com/YWLypWrlLe
— Naj (@Zencsss) November 19, 2019