Einn stálheppinn miðahafi var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld. Vinningsmiðinn var keyptur í München í Þýskalandi og gefur miðahafanum 14.294 milljónir íslenskra króna. Þá voru fjórir með 2. vinning og fá hver 969 milljónir í sinn hlut en tveir miðanna voru keyptir í Stuttgart og tveir í Koblenz, Þýskalandi. Tíu miðahafar voru svo með 3. vinninginn og fá 20,6 milljónir króna hver.
Enginn var með 1. vinning í Jóker í kvöld og gekk 2. vinningur heldur ekki út.