Auglýsing

Stöðvaður og fékk 200 þúsund króna sekt

Lögreglan stöðvaði ökumann í gær vegna umferðarlagabrota og reyndist þetta heldur betur dýr ökuferð hjá viðkomandi.

„Hún reyndist afdrifarík ökuferðin sem ónefndur ökumaður fór í í borginni í gær. Sá var stöðvaður sökum þess að bifreið hans var búin nagladekkjum, en við því er 80 þúsund króna sekt. Til að bæta gráu ofan á svart kom í ljós við afskiptin að viðkomandi hafði þegar verið sviptur ökuréttindum, en fyrir þær sakir er 120 þúsund króna sekt. Hætt er við að þetta komi illa við pyngjuna og því eru ökumenn hvattir til að vera réttu megin við lögin svo að forðast megi útgjöld sem þessi,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing