Annar stofnanda GAMMA Capital Management, Gísli Hauksson, hefur verið kærður til lögreglu fyrir lífshættulega árás. Kærandinn er fyrrverandi sambýliskona Gísla og á árásin að hafa átt sér stað á heimili þeirra í vor. Greint er frá þessu á vef Fréttablaðsins
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er Gísla gefið að sök að hafa beitt konuna ofbeldi, tekið hana kyrkingartaki og þrengt hættulega fast og lengi að hálsi hennar.
Tvö ár eru síðan Gísli lét af störfum hjá GAMMA en hann átti yfir 30% hlut í félaginu þegar Kvika banki keypti það sumarið 2018, fyrir 2,4 milljarða. Gísli er formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins og situr einnig í framkvæmdarstjórn flokksins.