Public House, Sumac og Vínstúkan tíu sopar ætla að slá upp veislu á Laugaveginum á morgun 26. júní.
Verður komið upp langborði með hvítum dúk á laugaveginum og fagnað allan daginn. Maturinn verður frá Public House og Sumac og mun Vínstúkan sjá um drykki.
Ákveðið var að endurtaka leikinn frá því í fyrra enda sló viðburðurinn í gegn. Veislan hefst kl. 14:00 og stendur til kl. 22:00 um kvöldið.
„Hvað gæti klikkað? Ekkert, ekkert gæti klikkað!“ segir í tilkynningu.